- --Leikir Laugardag
- -Úrslit Föstudags
- -Úrslit Fimmtudags
- A-lið
- B-lið
- C-lið
- D-lið
- Dagskrá
- Félög
- Fréttir
- Gestabók
- Mótsstjórn
- Myndbönd
- Myndir
- Pæjumótsblað
- Upplýsingar

Fréttir
11. júní 2010
Landsleiknum á Pæjumótinu var að ljúka
Landsleiknum á Pæjumótinu var að ljúka. Það voru valin 2 lið, annað liðið kallast Landsliðið og hitt Pressuliðið. Liðin áttust við á Hásteinsvellinum og var leikurinn jafn og spennandi. Áhorfendur voru vel með á nótunum og var stúkan þéttsetin. Veðrið í dag hefur verið mjög gott, glampandi sól og smá gola. Leiknum sjálfum lauk með stórmeistarajafntefli 2-2. Myndir úr leiknum voru að detta í hús og má sjá þær hér.
Núna stendur yfir grillveisla við Týsheimilið en í kvöld halda stelpurnar í Diskósund í sundlaug Vestmannaeyja.
Fleiri myndir frá deginum í dag eiga eftir að koma inn á næstunni og fleiri viðtöl.






