- --Leikir Laugardag
- -Úrslit Föstudags
- -Úrslit Fimmtudags
- A-lið
- B-lið
- C-lið
- D-lið
- Dagskrá
- Félög
- Fréttir
- Gestabók
- Mótsstjórn
- Myndbönd
- Myndir
- Pæjumótsblað
- Upplýsingar

Fréttir
16. júní 2007
Úrslitaleikirnir að hefjast
Nóg er að gerast hjá stelpunum á pæjumótinu, byrjað var að spila klukkan 8 í morgun og þrátt fyrir dálitla rigningu þá hafa mörg mörk verið skoruð og allir í góðu skapi.
Úrslitaleikirnir hefjast núna klukkan 10. Í keppni C-liða spila ÍBV2 og Breiðablik 1 til úrslita. Fjölnir mætir Breiðabliki klukkan 10:40 í keppni B-liða og svo er úrslitaleikur A-liða leikinn klukkan 11:20 á Hásteinsvelli. Þar mætast Breiðablik og Afturelding í hörkuleik sem ekkert verður gefið eftir.
Hægt er að sjá úrslit og stöðu liða hér á síðunni ásamt því að myndir frá félögum, Selfossi, ÍBV, Þrótti eru komnar á netið. Hvetjum við alla að koma með minniskortin eða bara myndavélarnar sjálfar í Týsheimilið og setjum við myndirnar á síðuna.
Til baka






