- --Leikir Laugardag
- -Úrslit Föstudags
- -Úrslit Fimmtudags
- A-lið
- B-lið
- C-lið
- D-lið
- Dagskrá
- Félög
- Fréttir
- Gestabók
- Mótsstjórn
- Myndbönd
- Myndir
- Pæjumótsblað
- Upplýsingar

Fréttir
14. júní 2008
Úrslitaleikjum lokið
Nú rétt í þessu var síðasta úrslitaleiknum að ljúka hér á Pæjumóti ÍBV og TM í Eyjum.
Í A-liðum mættust Breiðablik og Afturelding og fóru Blikastúlkur með sigur af hólmi, lokatölur 2-0 og þær eru því Pæjumótsmeistarar 2008 í flokki A-liða.
Lið Fjölnis og HK mættust í flokki B-liða. Lokatölur þar urðu þær sömu og hjá A-liðunum og voru það stúlkurnar úr Fjölni sem hrósuðu sigri. Glæsilegt hjá þeim.
ÍBV og FH-1 mættust í úrslitaleik C-liða. FH stúlkur spiluðu vel í leiknum og unnu góðan 3-0 sigur á heimaliðinu.
Það eru því lið Breiðabliks, Fjölnis og FH sem eru sigurlið Pæjumóts ÍBV og TM árið 2008.
Til baka





