Staðfestingargjald:
  • Hvert lið þarf að greiða kr. 10.000 í staðfestingargjald (A-lið 10.000, B-lið 10.000 og C-lið 10.000) inn á reikning 1167-26-401 í Sparisjóði Vestmannaeyja fyrir 15. apríl 2012 og senda kvittun á sigfus@ibv.is  Gjaldið er óafturkræft. Kennitala félagsins er 680197-2029.

Þátttökugjald:

  • Síðan er kr. 13.000 þátttökugjald fyrir hvern þátttakanda. Þetta er jafnaðarverð, börn og fullorðnir greiða sama gjald. Greiða þarf fyrir 20. maí og senda kvittun á sigfus@ibv.is 

Innifalið í þátttökugjaldi:

  • Við komu og brottför er rútuferð til og frá bryggju/flugvelli að og frá gististað.
  • Gisting í svefnpokaplássi í skólastofu.
  • Morgunverður alla morgna, fimmtudag til laugardags.
  • Heit máltíð alla dagana. 1 máltíð á miðvikudegi (fyrst 2012) 2 máltíðir fimmtudag og föstudag auk þess ein á laugardag.
  • Skemmtikvöld, grillveisla, diskósund, skemmtisigling, lokahóf, 2x frítt í sund og ýmislegt annað skemmtilegt.
  • Rútuferð um eyjuna sem og bátsferð með Viking tours félögin skipuleggja sjálf bátsferð í samráði við Viking tours 488-4884

Fyrir foreldra og fararstjóra:

  • Tveimur fararstjórum frá hverju félagi er boðið í siglingu og tilheyrandi.

Dagskrá mótsins:

  • Er enn í mótun, verður sett inn á vefsíðu þegar nær dregur.
  • Á föstudeginum verður spennandi leikur milli landsliðs Pæjumótsins og pressuliðs er þjálfarar velja. Liðin keppa í sérmerktum búningum sem eru búnir til fyrir þennan leik. Hver leikmaður, sem tekur þátt í þessum úrvalsleik, fær að eiga sinn búning að leik loknum til minningar um þátttöku sína í leiknum.

 

Athugið að liðin þurfa alfarið að koma sér sjálf til Eyja. (Munið að panta tímanlega með flugi eða Herjólfi).

  • Við viljum minna á að ódýrast er að kaupa afsláttarpakka á www.herjolfur.is
    • Gjaldflokkar eru þrír fyrir farþega
    • Börn 0-11 ára frítt
    • Unglingar
    • Fullorðnir
    • Fólksbifreið, panta þarf tímanlega fyrir bíla
    • Athugið að verð er nokkuð breytilegt eftir hvort siglt er til og frá Þorlákshöfn eða Landeyjahöfn.