- --Leikir Laugardag
- -Úrslit Föstudags
- -Úrslit Fimmtudags
- A-lið
- B-lið
- C-lið
- D-lið
- Dagskrá
- Félög
- Fréttir
- Gestabók
- Mótsstjórn
- Myndbönd
- Myndir
- Pæjumótsblað
- Upplýsingar

Reglur:
- Allir leikir skulu hefjast á því að dómari leiði liðin frá marki við girðingu að miðju vallarins.
- Dæma skal eftir reglum KSÍ fyrir 5. flokk 7 manna bolta.
- Dómari skal ekki hefja leik nema þjálfari sé við hliðarlínu. Varamaður og aðstoðarmenn verða að vera á merktu svæði. Dómari hefur heimild til að stöðva leikinn og leiðrétta stöðuna.
- Leiktími: 5. flokkur 2x15 mín hvor hálfleikur, 3 mín hlé. Bolti nr. 4.
- Í leikjum er aldrei skráður meiri markamunur en 3 mörk
- Verði lið jöfn að stigum í riðlakeppni gilda eftirfarandi reglur um röð liða:
a) Markamismunur
b) Ef markamunur er jafn, þá telst það lið ofar sem hefur fengið færri mörk á sig.
c) Markamismunur í innbyrgðis leikjum
d) Hlutkesti - Undanúrslitaleikir og úrslit um verðlaunasæti: Verði lið jöfn að venjulegum leiktíma loknum, vinnur það lið sem skoraði eftir stystan leiktíma í fyrri hálfleik eða seinni hálfleik.
- Dæmi:
- Lið A skorar í fyrri hálfleik eftir 3 mín og 45 sek
- Lið B skorar í fyrri hálfleik eftir 2 mín og 10 sek
Endi þessi leikur með jafntefli, þá telst lið B sigurvegari.
Aðstæður gætu verið óhagstæðar á annað markið því verður reglan að gilda fyrir hvorn hálfleik.
Ef leikur endar með markalausu jafntefli skal vítakeppni ráða úrslitum, 5 spyrnur á hvort lið.
- Dæmi:
- Ef það er einn riðill, þá skal samt leika úrslitaleiki.
- Dæmi:
- Lið sem lentu í 5. og 6. sæti skulu spila um 5.sæti.
- Lið sem lentu í 3. og 4. sæti skulu spila um 3.sæti.
- Lið sem lentu í 1. og 2. sæti skulu spila um 1.sæti.
- Dæmi:






