Vestmannaeyjar

Það eru ótrúlega margir sem aldrei hafa komið til Eyja og þekkja ekkert til staðhátta hér. Við ætlum að bæta aðeins úr þessu og sýna Pæjumótsgestum nokkrar myndir sem teknar voru í blíðskaparveðri eins og oft er á Pæjumóti.

Ferðamáti

Farþegar koma annað hvort sjóleiðis með Herjólfi eða flugleiðis Ernir fljúga áætlunarflug til Vestmannaeyja.

Fjöll og klettar

Í Vestmannaeyjum eru mörg þúsund örnefni og er nauðsynlegt fyrir þá sem ætla að dvelja í Eyjunum í nokkra daga, að læra nöfn helstu fjalla, kletta og eyja. Settu þér það markmið að læra a.m.k. 5 örnefni.

Stolt Eyjanna er Heimaklettur, hæsta fjall á Heimaey, 283 metra hátt. Austan við Heimaklett er Miðklettur og þar austan við er Ystiklettur. Þessir þrír klettar mynda stórkostlega umgjörð utan um Klettsvík, þar sem Keikó var í kví sinni á sínum tíma. Í Ystakletti er hellir, Klettshellir, og þangað inn hefur stundum verið farið með þátttakendur á Pæjumóti í bátsferð með PH Víking. Inni í hellinum hefur skipstjórinn á snekkjunni oft tekið lagið á saxófóninn sinn. Þykir hljómurinn þar inni mjög fagur.

Vestan og norðan við golfvöllinn rís hár tindur, Blátindur. Hann er vestan megin við Herjólfsdal, en austan við dalinn er Fiskhellanef. Fyrir ofan stóra fótboltann er Háin. Klifið er kletturinn með öllum möstrunum, hann er fyrir ofan Friðarhöfn.

Allir þekkja Eldfellið sem varð til í gosinu 1973, vestan við Eldfellið er Helgafell sem er  um 5000 ára gamalt eldfjall.
 
Eyjar
Vestan við Heimaey sjáum við röð eyja og kletta. Syðst, það er lengst til vinstri er drangur er heitir Jötunn, þá kemur eyjan Hæna, Hani, Grasleysa og Hrauney þar á bak við eða vestan við. Vestur af Smáeyjum sjást Þrídrangar og þar fyrir sunnan Einidrangur.

Austan við Heimaey eru Elliðaey og Bjarnarey. Ef skyggni er gott sjáum við Heklu, Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul í baksýn, en þetta eru fjöll á stærstu eyjunni í Vestmannaeyjaklasanum, Íslandi.
 
Herjólfur
Herjólfur siglir frá Básaskersbryggju milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar þrisvar sinnum  til fimm sinnum á dag. Þorlákshöfn er varahöfn Landeyjahafnar og ef siglt er þangað er um tvær ferðir á dag að ræða. Allar nánari upplýsingar um ferðir Herjólfs fást í síma 481-2800 og á www.herjolfur.is.
 
PH-Víking
PH Víking er ferðamannaskip með daglegar bátsferðir. Einnig sérferðir fyrir 10 manns eða fleiri, rútuferðir, fugla- og hvalaskoðun, sjóstöng. Viking tours,. 4884884, 8968986, viking@boattours.is og www.boattours.is
 
Þjónusta
Sjúkrahús og heilsugæsla, frábær þjónusta sem við vonum að enginn þurfi að nýta sér.
Sundlaugin í eyjum tók stakkaskiptum þegar nýtt glæsilegt útisvæði var tekið í notkun árið 2010.
Kaffihúsum hefur fjölgað nokkuð í eyjum undanfarið ár.
 
Matvara
Í miðbænum er matvöruverslunin Vöruval í Kúluhúsinu. Krónan er með verslun í miðbænum við Strandveg og svo er Kjarval búð vestur í bæ aðeins vestan við Hamarsskóla og Þórsheimilið.
 
Máltíðir á Pæjumótinu
Á Pæjumótinu eru máltíðir þátttakenda í ný endurbættu samkomuhúsi Eyjanna, Höllinni við Strembugötu sem er fyrir ofan Barnaskólann og malarvöllurinn í Löngulág.
 
Veitingastaðir
Café María er á horni Vestmannabrautar og Skólavegar.
Við Heiðarveg eru Pizza 67 ,900 Grillhús (Topppizzur) er á Vestmannabraut gegnt pósthúsinu, Toppurinn við Heiðarveg og Shellskálinn, Tvisturinn við Faxastíg. Kráin við Boðaslóð. Við Friðarhöfn er síðan Skýlið sem býður uppá ýmsa rétti við sjávarsíðuna.
 
Bakarí og konditori
Vilberg kökuhús er við Bárustíg og Arnórs bakarí er nú einnig á Bárustíg auk þess sem Arnór bakari er með Vinaminni kaffihús við hlið bakaríisins þar sem boðið er uppá ýmsa drykki súpu og saltbar.
 
Íþróttaaðstaða
Leikir á Pæjumóti fara fram á Þórsvelli, Týsvelli og úrslitaleikir á Hásteinsvelli.
Eimskipshöllin er nýjung í íþróttalífi eyjanna fjölnota íþróttahús þar sem er hálfur fótboltavöllur lagður gervigrasi sem bíður uppá tvo velli fyrir 7 manna fótbolta á pæjumótinu.

Skrifstofa ÍBV og skrifstofa Pæjumótsins er í Týsheimilinu. Gestir á Pæjumóti eru velkomnir þangað inn í setustofuna þar sem er veitingasala. Í Týsheimilinu eru allar upplýsingar um Pæjumótið.

Íþróttahúsið er notað á kvöldvökunni á fimmtudagskvöldið.
Í sama húsi er sundlaugin. Hver þátttakandi á Pæjumótinu fær tvo miða í sund.
 
Gisting þátttakanda á Pæjumótinu
  

Ferðaþjónustuaðilar í Eyjum

 
Upplýsingamiðstöð:

Sjúkrahús/heilsugæsla:

  • Sólhlíð 10,. 4811955

Apótek:

  • Lyf og heilsa, við Skólaveg í nýjum verslunarkjarna í miðbænum s: 4813900

Bílaþjónusta:

  • 5 bensínstöðvar, bíla- og hjólbarðaverkstæði.

Leigubílar

  • Eyjataxi, s: 698 2038

Bankar:

Póstur:

  • Vestmannabraut 22,. 4811000.

Vínbúð:

  • Strandvegi 50,. 4811301.

Handverkshús:

  • Gallerí Heimalist, Strandvegi,.4812250.
  • Gallerí Sjólist, Heiðarvegi 9a, 4812913
  • Gallerí Guðnýjar, Vesturvegi 22, 4813084
  • Gallerí Steinu, Vestmannabraut 36, 4813208
  • Gallerí Prýði, Kirkjuvegi 10a, 4811569

Söfn/sýningar:

  • Fiska- og náttúrugripasafnið,Heiðarvegi 12,. 4811997, opið daglega frá 1. maí til 15. sept. kl. 11-17. Um helgar að vetrinum kl.15-17 og eftir samkomulagi, . 8992540, natturu@vestmannaeyjar.is og www.vestmannaeyjar.is/safnahus
  • Byggðasafn Vestmannaeyjavið Ráðhúströð,. 4811194, opið daglega frá 1. maí til 15. sept. kl. 11-17. Um helgar að vetrinum kl. 15-17 og eftir samkomulagi. byggdasafn@vestmannaeyjar.is.
  • Skanssvæðið: Stafkirkjan - Landlystopið yfir sumartímann kl.11-17, yfir vetrartímann eftir samkomulagi, . 4811194, 8638963, 4811149.
  • Kvikmyndasýningar fyrir ferðamenn í Félagsheimilinu alla daga yfir sumartímann og á veturna eftir samkomulagi,. 481-1045, 694-8945.

Afþreying/sport:

Skoðunarferðir:

 

Samgöngur:

Nánari upplýsingar um Vestmannaeyjar: